The Forsyte Saga er bókaröð eftir enska rithöfundinn og Nóbelsverðlaunahafann John Galsworthy. Sögurnar komu fyrst út á árunum 1906–1921 og voru svo gefnar út undir þessum titli árið 1922. Hér segir frá lífi nokkurra meðlima nýríkrar fjölskyldu í efri millistétt á Englandi.